Ekki sammála

Mín reynsla er sú að mútta reykti töluvert og gerir enn - einnig var kaffidrykkja eins og gengur og gerist.  Reykingar minna ættingja urðu til þess að ég gjörsamlega æli við sígarettureyk - ég nöldraði svo mikið að það fór þannig að foreldrar mínir og gestir voru neyddir út þegar ég var heima.  Og kaffið.... verri drykkur er ekki til - þvílík della að neyða þetta ofan í sig og þykjast finna það gott, svo með tímanum venst óþverrinn og fólk getur ekki vaknað öðruvísi nema þamba kaffi.

Skal skjóta því að svona í lokið að ég á það til að reykja þegar ég fæ mér í glas (skrítið)  :)


mbl.is Rannsóknin: Börn smitast af fíkn foreldra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Þá ert þú undantekningin. Þýðir ekki að rannsóknin sé ónýt. Þú getur verið sammála þó þú fallir í þennan hóp.

Páll Geir Bjarnason, 2.10.2008 kl. 20:38

2 identicon

Sama sagan hér. Get ekki hugsað mér tóbaksreykingar og allra síst inni á heimilinu mínu.

Skrítin rannsókn.

Guðný (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 21:53

3 identicon

Ég get einmitt sagt það sama, foreldrar mínir reyktu og mér hefur líkað ennþá verra við þær eftir að hafa verið í kringum þetta.

Ég er sérstaklega ósammála því með að börnin verði líkamlega háð. Jafnvel þó það sé rétt þá verður viðkomandi að átta sig á fíkninni og tengja hana við vöruna, ungmenni fara ekki skjálfandi í næstu sjoppu vegna þess að foreldrarnir reyktu. Það eru andlegar/félagslegar ástæður hjá þeim eins og öllum öðrum.

Geiri (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 04:05

4 Smámynd: Sigursteinn Jóhannes Gunnarsson

Þótt að 95 kæmu og commentuðu hér um að þeir lentu ekki í þessu þá væri það ekki nema 96. manneskjan sem gæti byrjað á því að "afsanna könnunina," þar sem aðeins 5% barna lentu í þessu.

Svo er annað að verið er að tala um nikótín en ekki sígarettur! Það að vera háður nikótíni er allt annað en að langa í sígarettu. Börnunum langaði eflaust ekki í sígarettur en fráhverfseinkenni nikótínfíknar voru til staðar. Sum þeirra sóttu óafvitandi í að vera í herbergi með reyk því þar vissi líkaminn að hann fengi nikótínið fyrst hann hafði enga reynslu af sígarettum. Ef þið væru sprautuð með nikótíni þá yrði líkami ykkar líklega háður nikótíni þrátt fyrir áframhaldandi ógeði á tóbaki.

Annars er ég á sama  pól og þið varðandi reykingar.

Sigursteinn Jóhannes Gunnarsson, 3.10.2008 kl. 08:32

5 identicon

En Sigursteinn þau ná ekki að tengja þetta saman svo vel að þau fari út í sjoppu og kaupi sér pakka vegna óbeinna nikótínfíknar.

Geiri (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 13:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kristján Blöndal Jónsson

Höfundur

Kiddi Blö
Kiddi Blö

Ég á það til að ýkja umræðuna töluvert mikið og hef gaman af því

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband